Fara í efni

Nýtt útlán fyrir sveitarfélög og félög í þeirra eigu

Þvottur á snúru og sumarhús við Hofsós
Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir
Þvottur á snúru og sumarhús við Hofsós Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir

Lánaflokkur LSS 39 0303

Útlánið er verðtryggt með föstum vöxtum, sem taka mið af lánakjörum sjóðsins á hverjum tíma. Hér er hægt að sjá núverandi lánakjör.

Lánið er til 17 ára með 34 vaxtagreiðslum en 30 afborgunum af höfuðstól. Gjalddagar lánsins verða á sex mánaðar fresti, 20. febrúar og 20. ágúst.

Endurgreiðsla höfuðstóls verður með jöfnum afborgunum á sex mánaðar fresti og er fyrsta afborgun af höfuðstól þann 20. ágúst 2024. Lokagjalddagi lánsins er 20. febrúar 2039.

Nánari upplýsingar veitir lánastjóri Lánasjóðsins, Þórdís Sveinsdóttir, thordis@lanasjodur.is.