Fara í efni

Aðalmiðlarasamningar

Lánasjóður sveitarfélaga hefur gengið frá samningum við aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðsins og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmið samninganna er að styrkja aðgang Lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.

Eftirfarandi fjármálafyrirtæki hafa heimild til að kalla sig „Aðalmiðlara með skuldabréf Lánasjóðsins“ til samræmis við þar til gerða samninga:

Arion banki hf.
Fossar fjárfestingarbanki hf.
Íslandsbanki hf.
Kvika banki hf.
Landsbankinn hf.

Samningarnir gilda frá 1. apríl 2026 til 31. mars 2027.

Helstu atriði samninganna:

Útboð og verðbréfalán

✓ Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
✓ Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum skuldabréfa Lánasjóðsins að lágmarki 200 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði.
✓ Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Lánasjóðurinn veitir.

Viðskiptavakt á eftirmarkaði

✓ Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir skuldabréf Lánasjóðsins og setur fram kaup- og sölutilboð að ákveðnu lágmarki í Nasdaq Iceland kauphöllinni fyrir opnun markaðar.
✓ Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 200 m.kr. að nafnverði með þá flokka Lánasjóðsins sem viðskiptavakt er með er honum heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.

Skuldabréfaflokkarnir, lágmarkstilboðsskylda og hámarksmunur kaup- og sölutilboða sem samningarnir ná til varðandi viðskiptavakt á eftirmarkaði:

Skuldabréfaflokkur Tilboðsskylda Hámarksmunur
LSS150434 40 m.kr. 0,75%
LSS151155 20 m.kr. 1,00%
LSS 39 0303 40 m.kr. 0,75%

Nánar fyrir fjárfesta: