Fara í efni

Norræni fjárfestingarbankinn

Undir lok árs 2025 gekk Lánasjóðurinn frá lánasamningi við Norræna fjárfestingarbankann (NIB) að fjárhæð 3,5 milljarðar króna til endurlána til sveitarfélaga vegna fjárfestinga í mennta- og íþróttamannvirkjum.

Skilmálar og kjör NIB endurlána

Lánin eru veitt til sveitarfélaga á hagstæðum kjörum í samræmi við skilmála NIB-lánsins:

NIB endurlán

Verðtrygging Já
Fastir vextir Já
Nafnvextir 3,85%
Gjalddagar vaxta Árlega (11. des.)
Lánstími 7 ár
Lokagjalddagi 11. des. 2033
Afborgunartegund 3 jafnar afborganir
Fyrsta afb. höfuðstóls 11. des. 2031
Uppgreiðsluheimild Nei
Lánshlutfall Hámark 50% af kostnaði

Skilyrði fyrir úthlutun NIB endurlána:

  • Lánshæf verkefni: Fjármögnunin er einungis veitt til nýbygginga og endurbóta á grunnskólum, leikskólum og íþróttahúsnæði sem tengist beint grunn- og leikskólastarfsemi.
  • Tímamörk framkvæmda: Ekki má líða lengri tími en 12 mánuðir frá því að viðkomandi verkefni lauk þar til lán er veitt úr sjóðnum.

← Til baka í Lánaframboð og lánakjör