Framkvæmdastjóri með erindi á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga
Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, flutti erindi á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í dag þar sem hann fjallaði um þróun fjármögnunarkjara sveitarfélaga og stöðu lánamarkaðarins.
Í erindinu kom fram að vaxtamunur á skuldabréfum Lánasjóðs sveitarfélaga gagnvart ríkisskuldabréfum hefur lækkað á síðustu misserum og að lánskjör sveitarfélaga hafi almennt batnað.
Jafnframt var farið yfir áhrif vaxtastigs á fjárhag sveitarfélaga og bent á að jafnvel litlar breytingar á vöxtum geti haft veruleg áhrif á fjármagnskostnað þeirra.
Einnig var fjallað um útlánastarfsemi og fjármögnun Lánasjóðsins, sem byggir á því að lágmarka vaxta-, gjaldeyris- og lausafjáráhættu með samræmingu útlána og fjármögnunar.