Útgáfa á skuldabréfi með breytilegum vöxtum
Lánasjóður sveitarfélaga lauk í dag, 4. desember 2025, lokuðu útboði á nýjum flokki skuldabréfa LSF 32 1209. Skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma sjóðsins og skráð í kauphöll Nasdaq Iceland. Skuldabréfin eru til sjö ára með breytilegum vöxtum og einni höfuðstólsgreiðslu á lokagalddaga þann 9. desember 2032. Bréfin bera breytilega REIBOR 3 mánaða vexti að viðbættu álagi sem greiddir eru ársfjórðungslega.
Alls bárust tilboð að nafnvirði ISK 8.540.000.000 á 0,65 - 1,00% álagi á breytilega REIBOR 3 mánaða vexti. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 2.660.000.000 á 0,77% álagi á breytilega REIBOR 3 mánaða vexti.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 9. desember 2025.
Markaðsviðskipti Kviku banka hf. höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna.
Nánari upplýsingar veita:
Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, í síma 515 4948 eða ottar@lanasjodur.is
Sigurður Rúnar Ólafsson, markaðsviðskipti Kviku banka, í síma 659 4533 eða sigurdur.olafsson@kvika.is