Fara í efni

Útboð LSS 39 0303 og LSS151155 - 8.nóv. 2023

Útboð LSS 39 0303 og LSS151155 - 8.nóv. 2023

Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 miðvikudaginn 8. nóvember 2023. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 til 1.000 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS151155 og að fjárhæð 1.000 til 1.500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS 39 0303. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Lánasjóðurinn hefur boðið aðalmiðlurum sjóðsins Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka og Landsbankanum að taka þátt í útboðinu.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:

Fyrirkomulag: “Hollensk” uppboðsaðferð þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. Heimilt er að afturkalla eða breyta tilboði með sama hætti og tilboðum er skilað inn, sé það gert fyrir lok útboðsfrests.

Tilboð: Í tilboði skal taka fram ávöxtunarkröfu án þóknunar og tilboðsfjárhæð.

Að öðru leyti er vísað til skilmála skuldabréfanna á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga

Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 8. nóvember 2023 til Lánasjóðs sveitarfélaga á netfangið utbod@lanasjodur.is

Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 17:00 á útboðsdegi. Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 13. nóvember 2023.