Fara í efni

Útboð LSS 39 0303 og LSS040440 GB

Útboð LSS 39 0303 og LSS040440 GB

Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum LSS 39 0303 og LSS040440 GB miðvikudaginn 16. nóvember 2022. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS040440 GB og að fjárhæð 1.000 til 1.500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS 39 0303. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Verkefni sem fjármögnuð verða með LSS040440 GB þurfa að uppfylla þau skilyrði sem koma fram í grænni umgjörð Lánasjóðsins. Dæmi um verkefni eru: Vistvænar byggingar, umhverfisvænar samgöngur, endurnýjanleg orka, fráveitur og meðhöndlun aukaafurða (úrgangs). Nánari upplýsingar um græna skuldabréfaútgáfu Lánasjóðs sveitarfélaga má nálgast á vefsíðu sjóðsins: Græn skuldabréf

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:

Fyrirkomulag: “Hollensk” uppboðsaðferð þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að fullu eða hluta, eða hafna þeim öllum. Heimilt er að afturkalla eða breyta tilboði með sama hætti og tilboðum er skilað inn, sé það gert fyrir lok útboðsfrests.

Tilboð: Í tilboði skal taka fram ávöxtunarkröfu án þóknunar og tilboðsfjárhæð.

Að öðru leyti er vísað til skilmála skuldabréfanna á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga


Útboðið fer fram í tvennu lagi og mun Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboði á skuldabréfaflokknum LSS040440 GB. Fjárfestar eru því beðnir að skila inn tilboðum í flokkinn LSS040440 GB á netfangið verdbrefamidlun@landsbankinn.is en tilboð i flokkinn LSS 39 0303 skulu send á netfangið utbod@lanasjodur.is.

Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 16. nóvember 2022 á ofangreind netföng.

Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 17:00 á útboðsdegi. Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 21. nóvember 2022.

Nánari upplýsingar veita:

Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, í síma 515 4948 eða ottar@lanasjodur.is
Gunnar S. Tryggvason, Markaðsviðskipti Landsbankans, í síma 410 6709 eða gunnars@landsbankinn.is