Fara í efni

Undirritun aðalmiðlarasamninga

Undirritun aðalmiðlarasamninga

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hefur gengið frá samningum við aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðsins og viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokkum LSS150224, LSS150434, LSS151155 og LSS 39 0303. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.

Frá 1. apríl 2022 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með skuldabréf Lánasjóðsins". Þær eru: Arion banki hf, Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf. og Kvika banki hf.

Helstu atriði samningsins eru:

  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum skuldabréfa lánasjóðsins að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði.
  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Lánasjóðurinn veitir.
  • Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir fjóra skuldabréfaflokka Lánasjóðsins og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki sem hér segir:
Skuldabréfaflokkur Tilboðsskylda (nafnv.)
LSS150224 10 m.kr.
LSS150434 40 m.kr.
LSS151155 20 m.kr.
LSS 39 0303* 20 m.kr.*


* Aðalmiðlarar þurfa ekki að setja fram tilboð í LSS 39 0303 fyrr en útistandandi nafnverð flokksins hefur farið yfir 5.000 milljónir króna.

  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans fari ekki yfir 1% fyrir LSS150224 og LSS150434 en 1,25% fyrir LSS151155 og LSS 39 0303.
  • Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 200 m.kr. að nafnvirði með þá flokka lánasjóðsins sem viðskiptavakt er með er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
  • Samningarnir gilda frá 1. apríl 2022 til 31. mars 2023.

Aðalmiðlarasamningur - sýnishorn og viðauki


Nánari upplýsingar veitir:
Óttar Guðjónsson
Sími: 515 4949
Netfang: ottar@lanasjodur.is