Tillaga tilnefningarnefndar Lánasjóðs sveitarfélaga fyrir aðalfund 2026
Tilnefningarnefnd Lánasjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt uppstillingu frambjóðenda til stjórnar og varastjórnar fyrir aðalfund Lánasjóðsins sem haldinn verður 20. mars 2026.
Fram kom að alls bárust framboð frá tólf aðilum innan tilkynnts frests, þar á meðal frá öllum sitjandi aðalmönnum stjórnar. Við uppstillingu frambjóðenda var tekið mið af jafnvægi milli minni og stærri hluthafa, lögbundnu kynjahlutfalli, landshlutasjónarmiðum og þeirri pólitísku samsetningu sem endurspeglast hjá sveitarstjórnum víða um land.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, hefur einn boðið sig fram til stjórnarformanns og verður sjálfkjörinn ef ekki berast önnur framboð.
Tillaga tilnefningarnefndar um aðal- og varamenn 2026
Aðalmenn:
Kristinn Jónasson – bæjarstjóri Snæfellsbæjar
Íris Róbertsdóttir – bæjarstjóri Vestmannaeyja
Halldóra Káradóttir – sviðsstjóri Reykjavíkurborgar
Guðmundur B. Guðmundsson – fv. formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar
Fannar Jónasson – bæjarstjóri Grindavíkur
Varamenn:
Helgi Hlynur Ásgrímsson – sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi
Gylfi Ólafsson – formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar
Sigurþóra Bergsdóttir – sveitarstjórnarfulltrúi á Seltjarnarnesi
Grímur R. Lárusson – sveitarstjórnarfulltrúi í Húnabyggð
Fjóla St. Kristinsdóttir – sveitarstjóri Grímsness- og Grafningshrepps
Aðrir frambjóðendur til stjórnar á aðalfundi 2026 eru Rúnar Bragi Guðlaugsson, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ, og Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar.
Lokafrestur til að skila inn framboðum til stjórnarkjörs er til hádegis 15. mars 2026.