Fara í efni

Stækkun skuldabréfaflokksins LSF 32 1209

Stækkun skuldabréfaflokksins LSF 32 1209

Lánasjóður sveitarfélaga seldi í dag að nafnvirði 1.500 m.kr. í skuldabréfaflokknum LSF 32 1209 á verðinu 100,8153 eða álaginu 60bp yfir 3M REIBOR vöxtum.

Skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma sjóðsins og skráð í kauphöll Nasdaq Iceland. Skuldabréfin eru með breytilegum vöxtum og einni höfuðstólsgreiðslu á lokagalddaga þann 9. desember 2032. Bréfin bera breytilega REIBOR 3 mánaða vexti að viðbættu 77 bp álagi sem greiddir eru ársfjórðungslega. Heildarstærð flokksins verður 4.160 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 26. ágúst 2026.