Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 22. janúar 2026
Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 22. janúar 2026. Uppgjör viðskipta fer fram 27. janúar 2026.
Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 950.000.000 á bilinu 3,44% - 3,64%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 520.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,46%. Útistandandi fyrir voru ISK 44.233.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 44.753.600.000.
Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 600.000.000 á bilinu 3,50% - 3,60%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 500.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,54%. Útistandandi fyrir voru ISK 37.615.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 38.115.000.000.