Fara í efni

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði 19.10.2022

Gullfoss
Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir
Gullfoss Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 19. október 2022. Uppgjör viðskipta fer fram 24. október 2022.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 2.210.000.000 á bilinu 2,78% - 2,97%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.310.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,90%. Útistandandi fyrir voru ISK 3.390.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 4.700.000.000.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 50.000.000 á kröfunni 1,97%. Ákveðið var að afþakka öll tilboð í flokkinn. Heildarstærð flokksins er ISK 26.860.000.000.

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949