Fara í efni

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði 16.11.2022

Minnismerki á Flateyri
Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir
Minnismerki á Flateyri Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS040440 GB þann 16. nóvember 2022. Uppgjör viðskipta fer fram 21. nóvember 2022.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 3.700.000.000 á bilinu 2,70% - 3,20%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.700.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,85%. Útistandandi fyrir voru ISK 4.700.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 6.400.000.000.

Alls bárust tilboð í LSS040440 GB að nafnvirði ISK 2.400.000.000 á bilinu 2,69% - 2,99%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 660.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,73%. Útistandandi fyrir voru ISK 2.200.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 2.860.000.000.

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949