Fara í efni

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði auk viðbótaútgáfu - 16. október 2023

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði auk viðbótaútgáfu - 16. október 2023

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS040440 GB þann 11. október 2023. Uppgjör viðskipta fer fram 16. október 2023.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 3.260.000.000 á bilinu 3,87% - 4,00%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.080.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,93%. Útistandandi fyrir voru ISK 18.087.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 19.167.600.000.

Alls bárust tilboð í LSS040440 GB að nafnvirði ISK 3.805.000.000 á bilinu 3,79% - 4,16%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 755.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,85%. Útistandandi fyrir voru ISK 6.610.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 7.365.000.000.

Það er stefna Lánasjóðsins þegar flokkar fara yfir 8.000 milljónir króna að stærð að sækja um viðskiptavakt við næstu endurskoðun aðalmiðlarasamninga.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Jafnframt áskilur Lánasjóðurinn sér rétt til að selja meira en 10% ef eftirspurn er til staðar.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 3.260.000.000 á bilinu 3,87% - 4,00%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.080.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,93%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS 39 0303 fyrir ISK 100.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,93%. Samþykkt viðbót nemur ISK 20.000.000 af nafnvirði. Útistandandi fyrir voru ISK 18.087.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 1.100.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 19.187.600.000.