Fara í efni

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 15. febrúar 2023

Augað við Rauðfoss
Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir
Augað við Rauðfoss Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS040440 GB þann 15. febrúar 2023. Uppgjör viðskipta fer fram 20. febrúar 2023.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 2.830.000.000 á bilinu 2,96% - 3,10%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 2.190.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,00%. Útistandandi fyrir voru ISK 9.342.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 11.532.600.000.

Alls bárust tilboð í LSS040440 GB að nafnvirði ISK 3.290.000.000 á bilinu 2,92% - 3,10%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.500.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,97%. Útistandandi fyrir voru ISK 5.110.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 6.610.000.000.

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949