Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 10. desember 2025
Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 10. desember 2025. Uppgjör viðskipta fer fram 15. desember 2025.
Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 1.390.000.000 á bilinu 3,72% - 3,88%. Ákveðið var að afþakka öll tilboð í flokkinn.
Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 300.000.000 á kröfunni 3,60%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 300.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,60%. Útistandandi fyrir voru ISK 37.315.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 37.615.000.000.