Fara í efni

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 08. nóvember 2023

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 08. nóvember 2023

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 8. nóvember 2023. Uppgjör viðskipta fer fram 13. nóvember 2023.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 3.290.000.000 á bilinu 3,70% - 3,83%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.670.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,74%. Útistandandi fyrir voru ISK 19.187.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 20.857.600.000.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.330.000.000 á bilinu 3,77% - 3,86%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 830.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,80%. Útistandandi fyrir voru ISK 27.850.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 28.680.000.000.