Fara í efni

Niðurstaða skuldabréfaútboði - 18. janúar 2023

Þvottur á snúru við Arnarfjörð
Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir
Þvottur á snúru við Arnarfjörð Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokknum LSS 39 0303 þann 18. janúar 2023. Uppgjör viðskipta fer fram 23. janúar 2023.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 4.002.000.000 á bilinu 2,98% - 3,10%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.266.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,02%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS 39 0303 fyrir ISK 76.600.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,02% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Útistandandi fyrir voru ISK 8.000.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 1.342.600.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 9.342.600.000.

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949