Fara í efni

Niðurstaða aðalfundar 2026

Niðurstaða aðalfundar 2026

Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. var haldinn bæði rafrænt og með hefðbundnum hætti 20. mars 2026 kl. 14:00.

Helstu niðurstöður fundarins:

1. Ársreikningur 2025 lagður fram til afgreiðslu

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2025.

2. Ákvörðun um greiðslu arðs

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar sem hljóðaði svo: „Stjórn sjóðsins leggur til að á árinu 2026 verði ekki greiddur út arður til hluthafa vegna afkomu 2025 til að styrkja stöðu sjóðsins og tryggja vöxt eigin fjár.“

3. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum Lánasjóðsins

Engar tillögur lágu fyrir fundinum.

4. Tillaga um starfskjarastefnu

Starfskjarastefna var samþykkt en engar breytingar eru á starfskjarastefnunni frá fyrra ári.

5. Kosning stjórnar skv. 15 gr. samþykkta félagsins

Í stjórn félagsins voru kjörin:

Aðalmenn:

  • Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, var sjálfkjörinn formaður stjórnar
  • Guðmundur B. Guðmundsson, fyrrum formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar
  • Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
  • Halldóra Káradóttir, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar
  • Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík

Varamenn:

  • Helgi Hlynur Ásgrímsson, sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþing
  • Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar
  • Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, bæjarstjórnarfulltrúi Seltjarnarnesbæjar
  • Grímur R. Lárusson, sveitarstjórnarfulltrúi í Húnabyggð
  • Fjóla St. Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsness- og Grafningshrepps

6. Kosning tilnefningarnefndar

Í tilnefningarnefnd voru kosin:

  • Magnús B. Jónsson, formaður
  • Aldís Hafsteinsdóttir
  • Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

7. Kosning utanaðkomandi fulltrúa í endurskoðunarnefnd

Þórdís Sveinsdóttir var kosin utanaðkomandi fulltrúi í endurskoðunarnefnd

8. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis

Aðalfundur kaus endurskoðunarfyrirtækið KPMG sem endurskoðanda félagsins fyrir árið 2026.

9. Tillaga um laun stjórnar og undirnefndar stjórna

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um stjórnarlaun þannig að stjórnarlaun verði kr. 220.448 fyrir hvern mánuð og taki breytingum miðað við launavísitölu 1. janúar n.k. Laun varaformanns verða 1,25-föld mánaðarlaun stjórnarmanna og laun formanns verða 1,5-föld mánaðarlaun stjórnarmanna. Varamenn í stjórn skulu fá laun fyrir hvern setinn fund, sem eru jöfn mánaðarlaunum stjórnarmanns.

Önnur mál voru ekki borin upp.