Fara í efni

Lánasjóður sveitarfélaga - Útboð LSS 39 0303 og LSS151155

Gata í Reykjavík
Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir
Gata í Reykjavík Ljósm.: Ingibjörg Hinriksdóttir

Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 miðvikudaginn 19. október 2022. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS151155 og að fjárhæð 1.000 til 1.500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS 39 0303. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Lánasjóðurinn hefur boðið aðalmiðlurum sjóðsins Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka og Landsbankanum að taka þátt í útboðinu.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:

Fyrirkomulag: “Hollensk” uppboðsaðferð þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að fullu eða hluta, eða hafna þeim öllum. Heimilt er að afturkalla eða breyta tilboði með sama hætti og tilboðum er skilað inn, sé það gert fyrir lok útboðsfrests.

Tilboð: Í tilboði skal taka fram ávöxtunarkröfu án þóknunar og tilboðsfjárhæð.

Þóknun: Lánasjóðurinn greiðir 0,15% þóknun fyrir ofangreinda skuldabréfaflokka.

Að öðru leyti er vísað til skilmála skuldabréfanna á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga

Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 19. október 2022 til Lánasjóðs sveitarfélaga á netfangið utbod@lanasjodur.is

Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 17:00 á útboðsdegi.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 24. október 2022.