Fara í efni

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 9. ágúst 2023

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði - 9. ágúst 2023

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokknum LSS 39 0303 þann 9. ágúst 2023. Uppgjör viðskipta fer fram 14. ágúst 2023.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 2.540.000.000 á bilinu 3,35% - 3,47%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.390.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,37%. Útistandandi fyrir voru ISK 16.697.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 18.087.600.000.

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949