Framvinduskýrsla grænna skuldabréfa 2025
Lánasjóður sveitarfélaga hefur birt framvinduskýrslu grænna skuldabréfa fyrir árið 2025. Í skýrslunni kemur fram að ný útlán til grænna verkefna námu alls 60 m.kr. á árinu, samanborið við 120 m.kr. árið áður.
Árið 2025 nýtti einn lántaki sér græna fjármögnun sjóðsins. Fjármagnið fór í borun nýrrar hitaveituholu, þar sem borað var niður á rúmlega 800 metra dýpi og mældist vatnsrennsli um 7 lítrar á sekúndu af tæplega 80°C heitu vatni. Gert er ráð fyrir að holan verði tekin í notkun haustið 2026.
Til að fjármagna græn verkefni nýtir Lánasjóðurinn útgáfu grænna skuldabréfa. Á árinu var 60 m.kr. ráðstafað úr skuldabréfaflokknum LSS 40 GB, sem samsvarar um 13% af óráðstöfuðu fé flokksins í upphafi árs. Engin ný útboð fóru fram á árinu í grænum skuldabréfaflokkum sjóðsins.
Allar grænar lánveitingar ársins féllu undir jarðvarmaverkefni samkvæmt flokkunarkerfi sjálfbærra fjárfestinga (e. EU Taxonomy). Hins vegar uppfylltu verkefnin ekki að fullu tæknileg matsviðmið reglugerðarinnar að fullu.
Í áritun óháðs endurskoðanda kemur fram að ekkert hafi komið í ljós við yfirferð sem bendir til annars en að ráðstöfun fjármuna hafi verið í samræmi við græna umgjörð sjóðsins.
Lánasjóður sveitarfélaga hefur frá árinu 2019 lagt áherslu á að styðja sveitarfélög við umhverfisvæna innviðauppbyggingu með hagkvæmri fjármögnun á umhverfisvænum innviðaverkefnum.
Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is.