Fara í efni

Framvinduskýrsla grænna skuldabréfa 2024

Framvinduskýrsla grænna skuldabréfa 2024

Lánasjóður sveitarfélaga hefur gefið út framvinduskýrslu grænna skuldabréfa fyrir árið 2024. Útlán til grænna verkefna sveitarfélaga var umtalsverð minni á árinu 2024 í samanburði við græn útlán á árinu 2023.

Skýrsluna má lesa hér.

Eftirspurn grænna lánveitinga hefur sveiflast síðustu ár enda mótast eftirspurnin eftir þeim fjárfestingaverkefnum sem sveitarfélögin standa frammi fyrir hverju sinni. Heildarlánveitingar Lánasjóðsins fyrir árið 2024 voru 120 milljónir. Það er umtalsvert lækkun frá árinu 2023, sem var metár, en þá lánaði sjóðurinn út 5.400 milljónir í grænar lánveitingar. Tvö sveitarfélög tóku græn lán hjá sjóðnum árið 2024 til samanburðar við fjögur árið áður.

Lánasjóðurinn flokkaði allar grænar lánveitingar síðasta árs í samræmi við lög nr. 25/2023 um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu sem byggir á reglugerð Evrópusambandsins nr. 2020/852 auk reglugerðar nr. 2021/2139 um flokkunarkerfi sjálfbærra fjárfestinga (e. EU Taxonomy). Flokkunarreglugerðin skilgreinir hvað telst vera umhverfislega sjálfbær atvinnustarfsemi. Þar eru sett fram tæknileg matsviðmið sem skilgreina að hvaða marki atvinnustarfsemi eða tiltekin verkefni fyrirtækja telst umhverfislega sjálfbær. Voru allar lánveitingar flokkaðar miðað við þau verkefni sem lánað var til og lagt mat á hvort þau féllu undir þá flokka sem skilgreindir eru samkvæmt flokkunarreglugerðinni. Enginn lántaki gat staðfest að viðkomandi verkefni uppfyllti tæknileg matsviðmið flokkunarreglugerðarinnar að öllu leyti.

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is