Fara í efni

Árshlutareikningur Lánasjóðs sveitarfélaga fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026

Árshlutareikningur Lánasjóðs sveitarfélaga fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026

Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga nam 1.299 milljónum króna á fyrri árshelmingi 2026 samanborið við 1.137 milljónum króna á sama tímabili árið 2025.

Heildareignir sjóðsins námu 239 milljörðum króna í lok júní 2026 og jukust um 4,3% frá árslokum 2025 þegar þær námu 229 milljörðum króna. Útlán sjóðsins námu 221 milljarði króna í lok tímabilsins, samanborið við 212 milljarða króna í árslok 2025. Ný útlán á fyrri helmingi ársins námu 10,2 milljörðum króna samanborið við 9,4 milljarða króna á sama tímabili árið 2025. Útlán til sveitarfélaga voru í samræmi við áætlun sjóðsins á tímabilinu.

Verðbréfaútgáfa sjóðsins var 203 milljarðar króna í lok júní 2026 og jókst um 4% frá árslokum 2025 þegar hún nam 195 milljörðum króna.

Eigið fé Lánasjóðsins nam 28,2 milljörðum króna í lok júní 2026, samanborið við 26,9 milljarða króna í árslok 2025. Vegið eiginfjárhlutfall var 361% með nýtingu mildunarákvæðis, samanborið við 320% í árslok 2025.

Rekstur fyrstu 6 mánaða ársins 1.1.-30.6.26 1.1.-30.6.25 1.1.-30.6.24 1.1.-30.6.23
Fjárhæðir í m.kr.        
Hreinar vaxtatekjur 804 761 838 804
Aðrar rekstrartekjur 657 532 437 245
Almennur rekstrarkostnaður -163 -156 -143 -133
Hagnaður tímabilsins 1.299 1.137 1.132 916
         
Efnahagur í lok tímabils        
         
Útlán og kröfur 220.673 206.656 195.234 183.278
Handbært fé, ríkisbréf og -víxlar 10.265 8.747 8.121 7.7.67
Markaðsverðbréf, skuldabréf og aðrar eignir 7.772 3.956 3.691 2.196
Eignir samtals 238.710 219.359 207.046 193.241
         
Verðbréfaútgáfa 203.207 190.379 179.937 169.890
Aðrar lántökur, skuldir og skuldbindingar 7.294 3.049 3.253 1.577
Skuldir samtals 210.501 193.428 183.191 171.467
         
Eigið fé 28.209 25.930 23.855 21.774
         
CAD- hlutfall m/hefðbundinni mildun 54,9% 54,9% 54,4% 53,8%
CAD- hlutfall m/fullri mildun* 364% 364% 410% 579%
Vogunarhlutfall 12% 11,8% 11,5% 11,3%

* Lánasjóðurinn nýtir sér mildunarákvæði vegna útlána til sveitarfélaga í íslenskum krónum sem eru með veð í tekjum sveitarfélaga.

Framtíðarhorfur

Lánasjóður sveitarfélaga gerir ráð fyrir að eftirspurn eftir útlánum verði svipuð og árið 2025. Starfsemi sjóðsins verður áfram rekin með sambærilegum hætti og áður, með áherslu á skilvirka þjónustu við sveitarfélög og ábyrga fjármögnun. Þá verður áfram lögð áhersla á að nýta sterkt lánstraust sjóðsins til að tryggja hagkvæma og stöðuga fjármögnun sveitarfélaga til framtíðar.

Árshlutareikningur Lánasjóðs sveitarfélaga 30. júní 2026
Afkomutilkynning