Fara í efni

Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga 2.117 m.kr. á árinu 2025

Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga 2.117 m.kr. á árinu 2025

Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga nam 2.117 milljónum króna á árinu 2025 samanborið við 2.070 m.kr. árið 2024.

Heildareignir sjóðsins námu 229 milljörðum króna í árslok 2025, sem er 8,5% aukning frá fyrra ári þegar þær voru 211 milljarðar króna. Heildarútlán jukust í 212 milljarða króna, en þau voru 200 milljarðar króna í árslok 2024. Ný útlán á árinu námu 20,6 milljörðum króna samanborið við 16,2 milljarða króna árið 2024.

Markaðsverðmæti verðbréfaútgáfu sjóðsins var 19,6 milljarðar króna í lok árs, en var 13,9 milljarðar króna árið áður. Útlán til sveitarfélaga voru í samræmi við útgáfuáætlun sjóðsins.

Eigið fé Lánasjóðsins stóð í 26,9 milljörðum króna í árslok, samanborið við 24,8 milljarða króna í árslok 2024. Vegið eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var 320% með fullri mildun, á móti 361% ári áður.

Stjórn sjóðsins leggur til að hluthöfum verði ekki greiddur arður vegna afkomu ársins 2025, í því skyni að styrkja stöðu sjóðsins og stuðla áfram að vexti eigin fjár.

Rekstur ársins 2025 2024 2023 2022
Fjárhæðir í m.kr.        
Hreinar vaxtatekjur............................................ 1.429 1.499 1.559 1.251
Aðrar rekstrartekjur........................................... 1.027 879 588 279
Almennur rekstrarkostnaður.............................. 339 308 282 270
Hagnaður ársins................................................. 2.117 2.070 1.866 1.260
         
Efnahagur 31. desember
Útlán og kröfur................................................... 211.558 200.021 190.762 170.229
Handbært fé, ríkisbréf og -víxlar......................... 9.901 7.994 6.834 10.197
Markaðsverðbréf, skuldabréf og aðrar eignir...... 7.323 2.860 2.534 352
Eignir samtals.................................................... 228.782 210.875 200.130 180.778
Verðbréfaútgáfa................................................ 182.957 182.957 174.170 158.290
Aðrar lántökur, skuldir og skuldbindingar........... 6.533 3.125 3.237 1.630
Skuldir samtals.................................................. 201.872 186.082 177.407 159.920
         
Eigið fé.............................................................. 26.910 24.793 22.727 20.858
         
CAD- hlutfall m/hefðbundinni mildun................. 54% 54% 53% 56%
CAD- hlutfall m/fullri mildun*............................. 361% 361% 416% 537%
Vogunarhlutfall.................................................. 12% 12% 11% 12%

* Lánasjóðurinn nýtir sér mildunarákvæði vegna útlána til sveitarfélaga í íslenskum krónum sem eru með veð í tekjum sveitarfélaga.

Framtíðarhorfur

Lánasjóður sveitarfélaga gerir ráð fyrir að eftirspurn eftir útlánum verði svipuð og árið 2025. Starfsemi sjóðsins verður áfram rekin með sambærilegum hætti og áður, með áherslu á skilvirka þjónustu við sveitarfélög og ábyrga fjármögnun. Þá verður áfram lögð áhersla á að nýta sterkt lánstraust sjóðsins til að tryggja hagkvæma og stöðuga fjármögnun sveitarfélaga til framtíðar.

Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.

Ársreikningur 2025