Aðalfundur 2022

Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. verður haldinn föstudaginn 1. apríl 2022 kl. 15:00 á Hótel Hilton, Reykjavík.

Í samræmi við samþykktir Lánasjóðsins verður jafnframt boðið upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Teams, en auk þess fer atkvæðagreiðsla á fundinum fram með rafrænum hætti. Aðilar þurfa að hafa meðferðis farsíma eða tölvu til að taka þátt í atkvæðagreiðslu.

Mikilvægt er að fundarmenn skrái sig fyrir fram á fundinn. Skráning á fundinn fer fram hér .

Vakin er athygli á því að allir sveitarstjórnarmenn eiga rétt á að sækja aðalfundinn svo og fulltrúar fjölmiðla skv. hlutafélagalögum (nr. 2/1995).

Fundarboð og dagskrá

Tillögur fyrir aðalfund

Starfskjarastefna

Umboð

Ársreikningur

Kjörnefnd