Undirritun aðalmiðlarasamninga
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hefur gengið frá samningum við aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðsins og viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokkum LSS150224, LSS150434 og LSS151155. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.
Frá 1. apríl 2019 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með skuldabréf Lánasjóðsins". Þær eru: Arion banki hf, Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf. og Kvika banki hf.
Helstu atriði samningsins eru:
- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum skuldabréfa lánasjóðsins að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði.
- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Lánasjóðurinn veitir.
- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir þrjá skuldabréfaflokka Lánasjóðsins og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki sem hér segir:
Skuldabréfaflokkur | Tilboðsskylda (nafnv.) |
LSS150224 | 20 m.kr. |
LSS150434 | 40 m.kr. |
LSS151155 | 20 m.kr. |
- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans fari ekki yfir 1%.
- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 200 m.kr. að nafnvirði með þá flokka lánasjóðsins sem viðskiptavakt er með er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
- Samningarnir gilda frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2020.
Aðalmiðlarasamningur - sýnishorn
Viðauki við aðalmiðlarasamning - sýnishorn
Nánari upplýsingar veitir:
Óttar Guðjónsson
Sími: 515 4949
Netfang: ottar@lanasjodur.is