Forsíða Fréttir Lán til sveitarfélaga Fjárfestar English
Forsíða vefsins Fréttir Útlán Fjármál English

Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Borgartún 30
Box 8100
128 Reykjavík
kt. 580407-1100

Tel:
  + 354 515 4900
Fax: + 354 515 4903

Póstlisti
Norræni fjárfestingarbankinn
Forsíða vefsins Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Þessi síða í ham fyrir sjónskerta
Greiðslufyrirmæli

þegar lántakendur greiða af lánum í erlendum myntum

Við greiðslu afborgana og vaxta af lánum í erlendum myntum sendir lánasjóðurinn tilkynningu um greiðslu í erlendri mynt um það bil tveim vikum fyrir gjalddaga. Tveimur bankadögum fyrir gjalddaga er gengið síðan fest og greiðsluseðill sendur í íslenskum krónum og krafa jafnframt stofnuð hjá Rb. Hefur lántaki þá allt að fimm bankadaga eftir gjalddaga til að inna greiðsluna af hendi án viðbótarvaxta.

Ef lántaki vill greiða af láninu í erlendri mynt en ekki láta umbreyta kröfunni í íslenskar krónur skal tilkynna lánasjóðnum um það minnst fjórum bankadögum fyrir gjalddaga.

Þegar greitt er í erlendri mynt ber að inna greiðsluna af hendi á gjalddaga og er þá ekki gefinn fimm bankadaga gjaldfrestur. Bent er á að þegar greitt er í erlendum myntum þarf oftast að gefa viðskiptabankanum fyrirmæli um greiðsluna með tveggja bankadaga fyrirvara.

Greiða skal af lánum í erlendri mynt inn á gjaldeyrisreikning lánasjóðsins.  Ef greiðslan kemur frá öðrum banka en viðskiptabanka lánasjóðsins þarf að gefa greiðslufyrirmæli með minnst tveggja bankadaga fyrirvara.

Viðskiptabanki  Íslandsbanki, Kirkjusandi, Reykjavík
SWIFT GLITISRE
Greiðslur í EUR:  
Reikningur 596 29 65278
IBAN númer IS60 0596 2906 5278 5804 0711 00
Færslubanki Glitnis JP Morgan Chase Bank, Frankfurt
   
Greiðslur í USD:  
Reikningur 515 38 101486
IBAN númer IS65 0515 38 101486 580407 1100
Færslubanki Glitnis JP Morgan Chase Bank, NY
   

Kennitala Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. er 580407-1100.

 Ef um greiðslur er að ræða í öðrum myntum vinsamlegast hafið samband við lánasjóðinn.

14.10.2009