Forsíða Fréttir Lán til sveitarfélaga Fjárfestar English
Forsíða vefsins Fréttir Útlán Fjármál English

Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Borgartún 30
Box 8100
128 Reykjavík
kt. 580407-1100

Tel:
  + 354 515 4900
Fax: + 354 515 4903

Póstlisti
Norræni fjárfestingarbankinn
Forsíða vefsins Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Þessi síða í ham fyrir sjónskerta
Þróunarbanki Evrópuráðsins

Upplýsingar til sveitarfélaga sem hyggjast nota endurlánafé frá CEB

Lánasjóður sveitarfélaga hefur á undanförnum árum samið um lántöku hjá CEB í evrum til 10 ára til verkefna á vegum sveitarfélaganna.

Þróunarbanki Evrópuráðsins í París (CEB) var stofnaður árið 1956 af nokkrum löndum innan Evrópuráðsins og er Ísland einn af átta stofnaðilum bankans. Aðilar að bankanum eru nú 38 ríki. Fjárhagsleg uppbygging CEB er svipuð og hjá Norræna fjárfestingarbankanum í Helsinki þó að markmið séu að sumu leyti önnur. Bankinn hefur fyrst og fremst félagsleg markmið og var verkefni hans í fyrstu að fjármagna félagslegt íbúðarhúsnæði og aðra uppbyggingu, sem tengdust aðstoð við flóttafólk og heimilislaust fólk í Evrópu eftir seinni heimsstyrjöldina. Sjá nánar www.coebank.org

Starfsmenn eru um 130 talsins. Útlán í upphafi árs voru 800 ma.kr. og árlegar lánveitingar eru um 100 ma.kr. CEB hefur hæsta mögulega lánshæfismat (AAA) frá þremur alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum og er með lántökukostnað sem liggur nokkuð undir millibanka-vöxtum (LIBOR).

Lántakendur geta verið ríkissjóðir landa sem eru aðilar að bankanum, sveitarfélög eða héraðsstjórnir og fjármálastofnanir í þeim ríkjum. Lánasjóðir sveitarfélaga á Norðurlöndum aðrir en LS eru lántakendur hjá CEB og eru þá milligönguaðilar fyrir þarlend sveitarfélög. Eini lántakandinn á Íslandi fyrir utan Lánasjóð sveitarfélaga hingað til er Reykjavíkurborg sem sótti um lán hjá CEB árið 1998 vegna einsetningar grunnskóla. Fastafulltrúi viðkomandi lands hjá Evrópuráðinu í Strasbourg leggur umsóknina fram þar að fengnu samþykki stjórnarráðsins.

Frá miðjum síðasta áratug hafa flest lönd Mið- og Austur-Evrópu gengið í Evrópuráðið og jafnframt orðið aðilar að bankanum. Er uppbygging í þeim löndum nú forgangsverkefni CEB en lánveitingar til V-Evrópu eru einnig töluverðar, m.a. til að halda útlánasafninu dreifðu og í háum gæðaflokki og vernda þannig lánshæfismatið.

Bankinn er nú að kanna hvernig nýta megi reynslu sveitarfélaga á Norðurlöndum af stofnun og starfsemi lánasjóða sveitarfélaga þar til að auka möguleika sveitarfélaga í Mið- og Austur-Evrópu til að afla sér lánsfjár á hagstæðum kjörum.

Útlán CEB eru til 3ja málaflokka:

1.      Menntun 

  • Bygging skóla og tengdum íþrótta- og menningarmannvirkjum
  • Húsnæði fyrir nemendur
  • Breytingar á skólahúsnæði til að auðvelda aðgengi
  • Bygging á verknámshúsnæði
  • Ofl.

2.      Bætt lífsskilyrði í þéttbýli sem og dreifbýli

Til að falla undir þennan flokk verða lánsbeiðnir að berast frá sveitarfélögum þar sem íbúafækkun hefur  átt sér stað eða þar sem skortur er á grunninnviðum viðkomandi sveitarfélags.  Einnig er skilyrði um að sveitarfélagið sé hlutfallslega fámennt eða á svæði þar sem landbúnaður, skógrækt eða sjávarútvegur er ríkjandi.

         Í þessum tilvikum lánar CEB til eftirfarandi verkefna:

  • Þróun/skipulag landssvæðis
  • Veitufyrirtæki; vatnsveitur, rafveitur, fráveitur og úrvinnslustöðvar
  • Gatnagerð og viðhald gatna
  • Innanbæjarsamgöngur á dreifbýlisstöðum
  • Grunnaðstaða fyrir skóla og heilsugæslu
  • Félagslegir samverustaðir eins og íþrótta-og leikvellir, útivistarsvæði, bókasöfn og kvikmyndahús
  • Áveita með þó fyrirfram ákveðnum hliðarskilyrðum.

3.      Umhverfisvernd

  • Minnkun/vinnsla úrgangs
  • Hreinsun og verndun grunnvatns
  • Dragar úr mengun jarðvegs og jarðvegslaga
  • Hljóðeinangrun
  • Framleiðsla á endurnýjanlegri orku
  • Orkusparandi verkefni
  • Minnkun á loftmengun
  • Verndun og þróun líffjölbreytni
  • Hreinni samgöngur

Lán eru almennt veitt til allt að 10 ára og eru lánuð út í evrum.  Lán geta að hámarki verið helmingur fjárfestingar og framkvæmdir eiga að fara fram á árunum 2008-2010.  Kostnaður á heildarverkefninu má ekki fara umfram 20 milljónir evra og hlutur CEB í verkefninu má ekki vera umfram 50% eins og áður sagði.

Lán til fjármálastofnana eins og Lánasjóðs sveitarfélaga eru yfirleitt svokölluð Multi-project lán þar sem lánasjóðurinn tekur að láni ákveðna fjárhæð og þarf síðan innan 18 mánaða að gefa skýrslu um notkun lánsfjárins og gera þá grein fyrir þeim verkefnum sem fjármögnuð eru með endurlánafé CEB. Það er því mjög mikilvægt að þau sveitarfélög sem fá úthlutað af láni frá CEB haldi vel utan um verkefnið þar sem CEB mun krefjast upplýsinga um kostnaðaráætlun, útboðsvinnslu, tímaramma framkvæmda, raunkostnað vs. áætlanir osfrv.

Hámarkslán fyrir hvert verkefni er € 5 m. CEB tekur ekki þátt í endurfjármögnun verkefna og skulu lán því veitt innan árs frá því að framkvæmdir hófust við verkefnið.