Útborgunarskilyrði
Skilyrði fyrir því að hægt sé að greiða út lán sem Lánasjóður sveitarfélaga hefur samþykkt eru meðal annars að neðangreind skjöl liggi fyrir. Samþykktir og skjöl skulu vera á því formi sem lánasjóðurinn mælir fyrir um.
Gæta skal þess að sveitarstjórnarfundur, boðun hans og ákvarðanataka fari fram í samræmi við sveitarstjórnarlög og samþykktir sveitarfélags. Meðal annars er vakin athygli á 65. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
| I. Lán til sveitarfélagsins | ||
| 1. | a. | Staðfest afrit af fundargerð sveitarstjórnar þar sem lántaka, veðsetning tekna og umboð til undirritunar er samþykkt. |
| b. | Staðfest afrit af fundargerð byggða/bæjarráðs þar sem lántaka, veðsetning tekna og umboð er samþykkt ásamt staðfestu afriti fundargerðar sveitarstjórnar þar sem fundargerð ráðsins er samþykkt eða önnur staðfesting á heimild byggða/bæjarráðs til lántökunnar. | |
| 2. | Staðfesting á lögmæti sveitarstjórnarfundar þar sem lántaka er samþykkt/staðfest. Lánasjóðurinn getur fallið frá þessu skilyrði þegar fulljóst er að fundur sé lögmætur. | |
| 3. | Lánssamningur eða skuldabréf undirritað af til þess bærum aðila. | |
| 4. | Útborgunarbeiðni undirrituð af þeim sem til þess hefur umboð. Sérstök útborgunarbeiðni er undirrituð fyrir hvern lánshluta, ef lán er greitt út í fleiri hlutum. | |
| II. Lán til stofnunar/félags í eigu eins eða fleiri sveitarfélaga | ||
| 1. | Staðfest afrit af fundargerð stjórnar stofnunar/félags þar sem lántaka og umboð til lántöku er samþykkt. | |
| 2. | Lánssamningur eða skuldabréf undirritað af til þess bærum aðila. | |
| 3. | Staðfest afrit félagssamþykkta með hömlum á meðferð hluta. | |
| 4. | Staðfesting á hverjir sitji í stjórn stofnunar/félags, eða útprentun úr hlutafélagaskrá ef við á. | |
| 5. | Staðfest afrit fundargerðar sveitarstjórnar þar sem viðeigandi ábyrgð/trygging er veitt. | |
| 6. | Útborgunarbeiðni undirrituð af þeim sem til þess hefur umboð. Sérstök útborgunarbeiðni er undirrituð fyrir hvern lánshluta ef lán er greitt út í fleiri hlutum. | |
| 7. | Staðfesting á tryggingu eigna ef við á. | |










