Fjárhagsstaða Lánasjóðs sveitarfélaga er afar traust eins og sjá má í ársreikningum.
Lánasjóðurinn hefur ekki tapað á útláni síðan hann hóf starfsemi árið 1967. Sveitarfélögin hafa reynst traustir lántakendur. Lánasjóðurinn hefur einnig mjög góðar tryggingar fyrir lánveitingum sínum til sveitarfélaga, en sveitarfélögin hafa sérstaka heimild í sveitarstjórnarlögum til að veita lánasjóðnum veð í tekjum sínum.
Lánasjóðurinn er með þrjá starfsmenn og hefur gert þjónustusamning við Samband íslenskra sveitarfélaga um kaup á ýmiskonar þjónustu af sambandinu. Samreksturinn hefur reynst hagkvæmur fyrir lánasjóðinn og átt þátt í að halda rekstrarkostnaði hans niðri. Fyrirhugað er að framhald verði á rekstrarsamvinnu lánasjóðsins og sambandsins










