| 30.8.2010 |
| Niđurstađa úr skuldabréfaútbođi í flokki LSS150224 |
| Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150224 þann 27. ágúst 2010. Alls bárust tilboð að nafnvirði ISK 1.450.000.000 á bilinu 3,49% - 3,74%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.150.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,60%. Útistandandi fyrir voru ISK 20.572.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 21.772.000.000. |
| 27.8.2010 |
| Útbođ LSS150224 |
Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á LSS150224 föstudaginn 27. ágúst. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi lánasjóðsins við Arion banka, Íslandsbanka, MP Banka og Saga Capital Fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu: |
| 26.8.2010 |
| Kynning á 6 mánađa uppgjöri 2010 |
| Meðfylgjandi er kynning Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. á 6 mánaða uppgjöri 2010. |
| 25.8.2010 |
| 6 mánađa uppgjör 2010 |
Afkoma lánasjóðsins á fyrri hluta ársins 2010 var umfram væntingar og er tekjuafgangur 941 m.kr. á móti 586 m.kr. fyrir sama tímabil fyrra árs. Munur milli ára felst í gengishagnaði vegna erlendra lána sem voru óvarin eftir fall bankanna 2008. Eigið fé í lok tímabilsins var 13,9 ma.kr. á móti 11,9 ma.kr. um mitt ár 2009. Vegið eiginfjárhlutfall, svonefnt CAD-hlutfall, var í lok tímabilsins 82% samkvæmt Basel II reglum. |
| 25.8.2010 |
| Fjárfestakynning vegna árshlutauppgjörs fimmtudag kl. 8:30 |
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 26. ágúst 2010 í starfsstöð sjóðsins, Borgartúni 30, 5 hæð. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Kynningin hefst kl. 08:30.
|
| 8.7.2010 |
| Birting útgefandalýsingar og grunnlýsingar LSS150224 |
| Lánasjóður sveitarfélaga ohf. (LSS), kt. 580407-1100, hefur birt útgefandalýsingu og grunnlýsingu dagsettar 6. júlí 2010 vegna töku skuldabréfa til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland hf. Útgefandalýsinguna og grunnlýsinguna ásamt þeim gögnum sem vitnað er til í þeim er hægt að nálgast hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105 Reykjavík og á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. www.lanasjodur.is fram til lokagjalddaga skuldabréfanna. |
| 5.7.2010 |
| Niđurstađa úr skuldabréfaútbođi í flokki LSS24 |
| Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150224 þann 2. júlí 2010. Alls bárust tilboð að nafnvirði ISK 915.000.000 á bilinu 4,00% - 4,20%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 365.000.000 á ávöxtunarkröfunni 4,06%. Útistandandi fyrir voru ISK 20.207.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 20.572.000.000. |
| 1.7.2010 |
| Lánasjóđur sveitarfélaga - Útbođ LSS150224 |
| Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á LSS150224 föstudaginn 2. júlí. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi lánasjóðsins við Arion banka, Íslandsbanka, MP Banka og Saga Capital Fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. |
| 24.6.2010 |
| Árétting vegna umfjöllunar um erlend lán sveitarfélaga |
Lánasjóður sveitarfélaga hefur farið yfir dóm Hæstaréttar, sem kveðinn var upp þann 16. júní sl., þar sem íslensk gengistryggð lán voru dæmd ólögmæt. Í dóminum er sérstaklega tekið fram að erlendar lántökur og lánveitingar eru heimilaðar. Í ljósi þessarar niðurstöðu er það mat lánasjóðsins að ekkert bendi til þess að þau erlendu lán sem lánasjóðurinn hefur endurlánað til sveitarfélaga séu í andstöðu við ákvæði laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001. |
| 31.5.2010 |
| Niđurstađa úr skuldabréfaútbođi í flokki LSS24 |
| Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150224 þann 28. maí 2010. Alls bárust tilboð að nafnvirði ISK 980.000.000 á bilinu 4,20% - 4,55%. |










