Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Lánasjóđur sveitarfélaga ohf.

Velkomin á vef Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. er lánafyrirtæki, sem starfar eftir hlutafélagalögum nr. 2/1995, lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, lögum um sjóðinn nr. 150/2006 og er undir eftirliti Fjármálaeftirlits.

Meginhlutverk lánasjóðsins er að tryggja íslenskum sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum með veitingu lána eða ábyrgða. Útlán hans takmarkast þó við verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu.

Jafnframt er það markmið lánasjóðsins að skapa öfluga samkeppni á lánsfjármarkaði fyrir sveitarfélög og fyrirtæki þeirra og reyna þannig að hafa áhrif á kjör þau sem íslenskum sveitarfélögum bjóðast frá öðrum lánveitendum til lækkunar.

Lánstraust lánasjóðsins er mjög gott vegna sterkrar fjárhagsstöðu hans og er lánasjóðurinn því í góðri aðstöðu til að útvega sveitarfélögunum hagstæð lán.

Lánasjóður sveitarfélaga er opinbert hlutafélag í eigu íslenskra sveitarfélaga sem eru 76 talsins. Heildarnafnverð hlutafjár er 5.000.000.000 kr.


Mynd

Forsíđa
Fréttir
Lán til sveitarfélaga
Fjárfestar
English

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta